Forsíða
Velkomin(n) á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 54.185 greinar.
Grein mánaðarins
Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir er íslenskt tónskáld og tónlistarmaður. Hildur ólst upp í Hafnarfirði og er menntaður sellóleikari. Hún hefur spilað með hljómsveitunum Pan Sonic, Throbbing Gristle, Woofer, Rúnk, Múm og Stórsveit Nix Noltes. Hún hefur jafnframt leikið á tónleikum með Animal Collective og Sunn O))).
Auk þess að spila á selló er Hildur einnig söngvari og kórstjóri. Hún hefur meðal annars stýrt kór á tónleikum Throbbing Gristle í Austurríki og London.
Árið 2020 vann Hildur Óskarsverðlaunin fyrir bestu frumsömdu tónlistina fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker og varð fyrsti Íslendingurinn til að vinna Óskarsverðlaun. Hildur er jafnframt fjórða konan frá upphafi sem hefur unnið Óskarsverðlaun fyrir frumsamda kvikmyndatónlist
Í fréttum
- 10. apríl: Imran Khan, forsætisráðherra Pakistans, er leystur frá störfum vegna vantrauststillögu gegn honum á þingi. Shehbaz Sharif tekur við embætti forsætisráðherra.
- 7. apríl: Tilnefning Ketanji Brown Jackson (sjá mynd) til Hæstaréttar Bandaríkjanna er staðfest af öldungadeild Bandaríkjaþings. Jackson verður fyrsta svarta konan til að taka sæti við Hæstaréttinn.
- 3. apríl: Viktor Orbán vinnur fjórða kjörtímabil sitt sem forsætisráðherra Ungverjalands.
- 2. apríl: Tveggja mánaða vopnahlé hefst í borgastyrjöldinni í Jemen.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Innrás Rússa í Úkraínu • Kórónaveirufaraldurinn • Sýrlenska borgarastyrjöldin • Stríð Rússlands og Úkraínu
Atburðir 21. apríl
- 1971 - Handritamálið: Fyrstu handritin komu heim frá Danmörku og voru það Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða.
- 1982 - Falklandseyjastríðið: Bretar hófu aðgerðir til að endurheimta Suður-Georgíu frá Argentínu með því að senda þangað sérsveitarmenn.
- 1989 - Um 100 þúsund kínverskir mótmælendur söfnuðust saman á Torgi hins himneska friðar í Beijing í Kína.
- 1992 - Í Danmörku komst ræningi undan með 7,5 milljónir danskra króna eftir að hafa látið til skarar skríða gegn peningaflutningabíl Danske Bank við Bilka í Árósum.
- 1993 - Hæstiréttur í La Paz dæmdi Luis Garcia Meza, fyrrum einræðisherra Bólivíu, í 30 ára fangelsi fyrir morð, þjófnað, svik og stjórnarskrárbrot.
- 1996 - Ólífubandalagið undir forystu Romano Prodi sigraði í þingkosningum á Ítalíu.
- 1997 - Fyrsta geimgreftrunin á vegum einkaaðila fór fram þegar jarðneskar leifar 24 manna voru sendar út í geim með Pegasusflaug.
- 2007 - Umaru Musa Yar'Adua var kjörinn forseti Nígeríu eftir kosningar sem þóttu einkennast af svindli.
- 2009 - Vísindamenn frá Stjörnuskoðunarstöðinni í Genf tilkynntu uppgötvun plánetunnar Gliese 581 e.
- 2010 - Íslenski handritavefurinn Handrit.is var opnaður.
Vissir þú...
- … að Tarana Burke stofnaði fyrstu Me Too hreyfinguna árið 2006?
- … að símonska er tegund af spillingu sem gengur út á sölu embætta kirkjunnar eða helgra gripa?
- … að Lafði Hester Stanhope stóð árið 1815 fyrir fyrsta fornleifauppgreftrinum í Palestínu?
- … að kváradagur hefur frá árinu 2022 verið haldinn hátíðlegur á fyrsta degi einmánaðar?
- … að hesliviður hefur verið notaður hefðbundið á Englandi í húsveggi og girðingar?
- … að her úkraínska stjórnleysingjans Nestors Makhno (sjá mynd) kom árið 1919 í veg fyrir að hvítliðar endurheimtu Moskvu í kjölfar rússnesku byltingarinar?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |