Rússneska

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jump to navigation Jump to search
Rússneska
Русский язык Rússkíj jazyk'
Málsvæði Búlgaría, Finnland, Grikkland, Indland, Ísrael, Kanada, Kína, Mongólía, Pólland, Rúmenía, Rússland, Tékkland og Þýskaland
Heimshluti Fyrrum Sovétríki, Vestur-Evrópa, Asía, Norður-Ameríka
Fjöldi málhafa Uþb. 280.000.000
Sæti 8
Ætt Indóevrópskt
        Baltóslavneskt
        Slavneskt
        Austurslavneskt

                Rússneska

Skrifletur {{{stafróf}}}
Opinber staða
Opinbert
tungumál
Abkasía, Gagásía, Hvíta-Rússland, Kasakstan, Krímea, Kirgistan, Rússland, Suður-Ossetía og Transnistría
Viðurkennt minnihlutamál {{{minnihlutamál}}}
Fyrsta mál
heyrnarlausra
{{{fyrsta mál}}}
Stýrt af Rússnesku Tungumála Stofnuninni
Tungumálakóðar
ISO 639-1 ru
ISO 639-2 rus
ISO 639-3 {{{iso3}}}
SIL RUS
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Rússneska (русский язык, borið fram [russkij izyk], Ru-russkiy jizyk.ogghlusta (uppl.)) er slavneskt tungumál sem er talað í Rússlandi en er einnig algengt samskipta- og móðurmál í öðrum fyrrverandi ríkjum Sovétríkjanna t.d. Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Úkraínu og Kasakstan.

Rússneska er rituð með afbrigði af kýrillísku letri. Hún er eitt þriggja mála sem nú eru notuð sem teljast til austurslavnesku málagreinarinnar, hin tvö eru úkraínska og hvítrússneska. Elstu heimildir ritaðar á austur-slavnesku máli eru frá 10. öld. Rússneskan hefur í gegnum aldirnar orðið fyrir miklum áhrifum frá kirkjuslavnesku, sem telst til suðurslavneskra mála, bæði hvað varðar orðaforða og málfræði. Þar að auki er í málinu gífurlegt magn tökuorða úr frönsku og þýsku yfir hugtök í stjórnmálum, vísindum og tækni.

Greining[breyta | breyta frumkóða]

Rússneska er austur-slavneskt mál innan indóevrópskrar málaættar. Austurslavnesk eru enn fremur úkraínsku og hvítrússnesku.

Grundvallar orðaforði, orðmyndunarreglur auk annarrar málfræði og ekki síst bókmenntahefðin hefur orðið fyrir miklum áhrifum frá kirkjuslavnesku. Kirkjuslavneska sem er enn notuð sem helgimál rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar er suðurslavneskt mál, á meðan að rússneska er austurslavnesk. Mörg orð í nútíma rússnesku ritmáli eru líkari nútíma búlgörsku en úkraínsku eða hvítrússnesku. Austurslavneski orðaforðinn hefur þó oft varðveist í talmáli í ýmsum rússneskum mállýskum.

Nafnorð hafa 6 föll. Auk þeirra 4 sem við þekkjum úr íslensku eru staðarfall og tækisfall. Rússneska hefur hvorki ákveðinn né óákveðinn greini og tengisögn í nútíð (er) er ekki notuð. Viktor er námsmaður - Viktor sdutent.

Útbreiðsla[breyta | breyta frumkóða]

Útbreiðsla rússnesku
Hinn rússneskumælandi heimur

Dökkblátt: opinbert mál
Grænblátt: mikið notað, víðast skilið eða talað; ekki opinbert

Rússneska er opinbert mál í Rússlandi og eitt af opinberum málum í Kasakstan, Kirgistan og Hvíta-Rússlandi. Hún er ein af sex opinberun málum Sameinuðu þjóðanna.

Rússneska er aðallega töluð í Rússlandi en er einnig mikið notuð í fyrrum Sovétríkjum. Fram að árinu 1917 var rússneska eina opinbera málið í Rússneska keisaradæminu (að undanteknu Stórfurstadæminu Finnlandi). Á sovéska tímabilinu var opinber stefna að öll mál væru jafnrétthá, en í raun var rússneska hið opinbera mál og var notast mest við hana í öllu opinberu. Eftir upplausn Sovétríkjanna árið 1991 hafa nánast öll hin nýfrjálsu ríki lagt mikið kapp á að styrkja þjóðartungu sína á kostnað rússneskunnar.

Í Lettlandi, þar sem meira en þriðjungur íbúa hafa rússnesku að móðurmáli, hefur staða málsins verið mjög umdeild. Stærsti hluti rússneskumælandi íbúa fluttu til landsins frá Rússlandi þegar það var undir hæl Sovétríkjanna og eiga margir Lettar erfitt með að sætta sig við að þeir séu fullgildir íbúar landsins. Sama er í Eistlandi þar sem um fjórðungur íbúa er rússneskumælandi.

Í þeim Austur-Evrópulöndum sem voru aðildarlönd að Varsjárbandalaginu var rússneska skyldunám í öllum skólum. Eftir upplausn Sovétveldisins hefur hlutverk rússnesku sem samskiptamál í þessum löndum minnkað verulega og má segja að enska hafi algjörlega tekið yfir því hlutverki hjá yngra fólki.

Mállýskur[breyta | breyta frumkóða]

Mállýskumunur hefur verið mjög mikill í rússnesku þó að munur á milli mállýskna hafi minnkað mikið á 20. öld. Mállýskumunur er bæði hvað varðar framburð, orðaforða og málfræði. Sú rússneska sem notuð er opinberlega og kennd í skólum byggist á mállýsku Moskvusvæðisins.

Stafagerð[breyta | breyta frumkóða]

Gnome-mime-sound-openclipart.svg

russian_alphabet.oggRússneska stafrófið


Vandamál við spilun skráarinnar?
Sjáðu margmiðlunar hjálpina

Rússneska er rituð með afbrigði af kýrillísku letri sem samanstendur af 33 bókstöfum.

Kýrillískur
bókstafur
Skrifletur Akademísk
umritun
Nálgun með
íslensku stafrófi
Framburðarábending
А а 01-Russian alphabet-А а.svg a a
Б б 02-Russian alphabet-Б б.svg b b
В в 03-Russian alphabet-В в.svg v v
Г г 04-Russian alphabet-Г г.svg g g
Д д 05-Russian alphabet-Д д.svg d d
Е е 06-Russian alphabet-Е е.svg je, e é, e
Ё ё 07-Russian alphabet-Ё ё.svg jo, o jo, o (eins og o í boð)
Ж ж 08-Russian alphabet-Ж ж.svg ž zj (raddað sje-hljóð)
З з 09-Russian alphabet-З з.svg z z (raddað s-hljóð)
И и 10-Russian alphabet-И и.svg i í
Й й 11-Russian alphabet-Й й.svg j j
К к 12-Russian alphabet-К к.svg k k (ófráblásið)
Л л 13-Russian alphabet-Л л.svg l l
М м 14-Russian alphabet-М м.svg m m
Н н 15-Russian alphabet-Н н.svg n n
О о 16-Russian alphabet-О о.svg o o
П п 17-Russian alphabet-П п.svg p p (ófráblásið)
Р р 18-Russian alphabet-Р р.svg r r
С с 19-Russian alphabet-С с.svg s s
Т т 20-Russian alphabet-Т т.svg t t (ófráblásið)
У у 21-Russian alphabet-У у.svg u ú (eins og ú í bú)
Ф ф 22-Russian alphabet-Ф ф.svg f f
Х х 23-Russian alphabet-Х х.svg ch/kh ch (líkt þýsku ch; dauft ach-hljóð)
Ц ц 24-Russian alphabet-Ц ц.svg c ts
Ч ч 25-Russian alphabet-Ч ч.svg č tj, tsj
Ш ш 26-Russian alphabet-Ш ш.svg š sj
Щ щ 27-Russian alphabet-Щ щ.svg šč sjtj (langt, mjúkt tje-hljóð)
Ъ ъ 28-Russian alphabet-ъ.svg (sýnir harðan framburð af samhljóðanum á undan)
Ы ы 29-Russian alphabet-ы.svg y i (hart i-hljóð)
Ь ь 30-Russian alphabet-ь.svg ' eða j j (sýnir mjúkan framburð af samhljóðanum á undan)
Э э 31-Russian alphabet-Э э.svg e e (samsvarar dönsku æ)
Ю ю 32-Russian alphabet-Ю ю.svg ju
Я я 33-Russian alphabet-Я я.svg ja ja

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]

Wikipedia
Wikipedia: Rússneska, frjálsa alfræðiritið