Forsíða
Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 53.860 greinar.
Grein mánaðarins
Haile Selassie var ríkisstjóri Eþíópíu frá 1916 til 1930 og Eþíópíukeisari frá 1930 til 1974. Hann átti þátt í að nútímavæða landið og var gríðarlega vinsæll leiðtogi, bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi.
Selassie var meðlimur eþíópísku rétttrúnaðarkirkjunnar. Innan rastafarahreyfingarinnar, sem var stofnuð á Jamaíku snemma á 4. áratugnum er hann talinn vera Kristur endurborinn. Rastafarahreyfingin er kennd við nafn Haile Selassie fyrir keisaratíð hans, Ras Tafari. Fylgjendur trúarinnar telja að titill Haile Selassie og ætterni hans sem meints afkomanda Salómons konungs og drottningarinnar af Saba sýni fram á að krýning hans hafi verið uppfylling á spádómi úr Opinberunarbók Jóhannesar um endurkomu Messíasar. Rastar líta sem svo á að Haile Selassie sé sá Messías sem eigi að frelsa Afríkubúa og fólk af afrískum uppruna um allan heim.
Í fréttum
- 17. janúar: Vésteinn Hafsteinsson er valinn þjálfari ársins í Svíþjóð.
- 15. janúar: Kraftmikið eldgos (sjá mynd) varð í neðansjávareldstöðinni Hunga Tonga–Hunga Haʻapai í Tonga-eyjaklasanum. Flóðbylgjuviðvaranir voru gefnar út allt til Bandaríkjanna.
- 2. janúar: Yfir 40 mótmælendur í Kasakstan láta lífið í kjölfar mótmæla gegn hækkandi eldsneytisverði og ríkisstjórn landsins.
- 29. desember: Ghislaine Maxwell er dæmd sek fyrir að tæla ólögráða stúlkur í kynlífsmansal af bandarískum alríkisdómstól.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Kórónaveirufaraldurinn • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 26. janúar
- 1988 - Söngleikurinn Óperudraugurinn hóf göngu sína á Broadway.
- 1991 - Borgarastyrjöldin í Sómalíu: Stjórn Siad Barre hrökklaðist frá völdum.
- 1992 - Boris Jeltsín tilkynnti að Rússland myndi hætta að beina kjarnavopnum á bandarískar borgir.
- 1993 - Václav Havel var kosinn fyrsti forseti Tékklands.
- 1998 - Lewinsky-hneykslið: Bill Clinton neitaði að hafa átt í kynferðislegu sambandi við Monicu Lewinsky.
- 1998 - Compaq keypti Digital Equipment Corporation.
- 2000 - World Wide Web Consortium (W3C) mælti með XHTML 1.0-staðlinum.
- 2001 - Þúsundir fórust þegar jarðskjálfti reið yfir Gujarat á Indlandi.
- 2009 - Geir Haarde baðst lausnar fyrir ráðuneyti sitt.
Vissir þú...
- … að í aðdraganda upplausnar Tékkóslóvakíu árið 1993 studdu aðeins 36% Tékka og 37% Slóvaka skiptingu landsins í tvennt?
- … að chileski rithöfundurinn Isabel Allende hefur verið nefnd mest lesni rithöfundur á spænskri tungu?
- … að ljósmyndarinn Annie Leibovitz (sjá mynd) tók mynd af fullklæddri Yoko Ono og nöktum John Lennon aðeins fimm klukkustundum áður en Lennon var myrtur?
- … að borgin Reno var helsta spilavítisborgin í Bandaríkjunum fyrir 1960?
- … að ítalska skáldið Gabriele D'Annunzio er stundum talinn upphafsmaður eða undanfari ítölsku fasistahreyfingarinnar?
- … að í manntali frá árinu 2011 sögðust 980 Ástralir vera af íslenskum ættum?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |