Persónuverndarstefna Apple

Uppfært 1. júní 2021

Persónuverndarstefna Apple lýsir því hvernig Apple safnar, notar og deilir persónuupplýsingum.

Auk þessarar persónuverndarstefnu bjóðum við upp á gagna- og persónuverndarupplýsingar sem eru innfelldar í vörur okkar og ákveðna eiginleika sem biðja um leyfi til að nota persónulegar upplýsingar þínar. Þessar upplýsingar um tilteknar vörur eru merktar með gagna- og persónuverndartákninu okkar.

Þú færð tækifæri til að fara yfir þessar upplýsingar áður en þú notar þessa eiginleika. Þú getur líka alltaf skoðað þessar upplýsingar hvenær sem er í stillingum viðkomandi eiginleika og/eða á netinu á apple.com/legal/privacy

Gefðu þér tíma til að kynna þér upplýsingar um starfshætti okkar í tengslum við persónuvernd, sem má finna gegnum yfirskriftirnar hér að neðan, og hafðu samband við okkur ef þú ert með einhverjar spurningar.

Sæktu afrit af þessari persónuverndarstefnu
 
Persónuverndarstefna fyrir heilbrigðisrannsóknaforrit Apple

  • Hvað eru persónuupplýsingar hjá Apple?

  • Persónuverndarréttindi þín hjá Apple

  • Persónuupplýsingar sem Apple safnar frá þér

  • Persónuupplýsingar sem Apple fær annars staðar frá

  • Notkun Apple á persónuupplýsingum

  • Deiling persónuupplýsinga af hálfu Apple

  • Verndun persónuupplýsinga hjá Apple

  • Börn og persónuupplýsingar

  • Kökur og önnur tækni

  • Flutningur persónuupplýsinga á milli landa

  • Áhersla fyrirtækisins á persónuvernd þína

  • Spurningar um persónuvernd

TRUSTe