Forsíða
Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 53.052 greinar.
Grein mánaðarins
Ungverjaland (ungverska: Magyarország) er landlukt ríki í Mið-Evrópu, rétt austan Alpafjalla. Það er rúmlega 93 þús km2 að stærð og voru vesturlandamærin að Austurríki jafnframt hluti járntjaldsins. Landið var fyrsta austurevrópska ríkið til að ganga í NATO í mars 1999. 1. maí 2004 fékk það inngöngu í Evrópusambandið. Íbúar eru 10 milljónir. Höfuðborgin er Búdapest.
Ungverjaland á landamæri að sjö öðrum ríkjum. Fyrir norðan er Slóvakía, fyrir norðaustan Úkraína, fyrir austan Rúmenía, fyrir sunnan Serbía, Króatía og Slóvenía og fyrir vestan Austurríki. Landið er afar láglent og er lægsti punkur þess í aðeins 78 metra hæð yfir sjó, þrátt fyrir mikla fjarlægð til sjávar. Dóná skiptir landinu í tvo hluta, en fljótið rennur frá norðri til suðurs um miðbik landsins. Nær allur austurhluti landsins er á ungversku sléttunni (pússtunni). Vestan við Dóná er hæðótt landslag og þar er nokkurt fjalllendi. Hæsti tindur landsins, Kékes, nær þó ekki nema 1.014 metra hæð. Vestast er Vínarsléttan sem teygir sig yfir landamærin til Austurríkis. Vestarlega í landinu er Balatonvatn, en það er stærsta stöðuvatn Mið-Evrópu.
Ungverjaland heitir Magyarország á ungversku. Heitið er dregið af einum af sjö ættbálkum úgríta, magyara, sem komu upphaflega frá Mið-Asíu. Magyarar sameinuðu ættbálkana á 10. öld og upp frá þeim tíma var heitið notað yfir landið. Á öðrum tungumálum er heitið hins vegar komið úr slavnesku. Slavar kölluðu íbúana onogur, sem merkir tíu ættir. Úr því myndaðist orðið Ungverjar. Ítalir segja Ungheria, en Danir og Þjóðverjar Ungarn. Á latínu bættist auka –h– við orðið, svo úr varð Hungarus. Þannig heitir landið enn Hungary á ensku og Hongrie á frönsku.
Í fréttum
- 21. júlí: Milwaukee Bucks vann NBA-titilinn 2021 þegar liðið vann Phoenix Suns 4-2. Grikkinn Giannis Antetokounmpo (sjá mynd) var valinn besti leikmaður (MVP) í úrslitum og skoraði hann 50 stig í lokaleiknum.
- 20. júlí Pedro Castillo er lýstur sigurvegari forsetakosninga í Perú.
- 12. – 15. júlí: Úrhelli í Evrópu varð til þess að hamfaraflóð olli því að meira en 200 létust.
- 7. júlí: Jovenel Moïse, forseti Haítí, var drepinn eftir að vopnaður hópur manna þusti inn á heimili hans.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Eldgosið við Fagradalsfjall • Kórónaveirufaraldurinn • Sumarólympíuleikarnir 2021 • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 27. júlí
- 1993 - Fyrsta útgáfa Windows NT kom út.
- 1993 - Blóðbaðið í Via Palestro: 5 létust og 12 slösuðust þegar bílasprengja á vegum sikileysku mafíunnar sprakk í Róm.
- 1996 - Einn lést og 111 særðust þegar sprengja sprakk í Centennial Olympic Park í Atlanta í Bandaríkjunum.
- 1997 - 17.000 manns þurftu að flýja heimili sín í Słubice í Póllandi þegar áin Oder rauf flóðvarnargarða.
- 2007 - Simpsonskvikmyndin var frumsýnd.
- 2010 - Aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hófust.
- 2011 - Stjórnlagaþing skilaði tillögu að nýrri stjórnarskrá Íslands.
- 2012 - Sumarólympíuleikarnir 2012 voru settir í London.
- 2018 - Lengsti tunglmyrkvi 21. aldar átti sér stað.
Vissir þú...
- … að á borðanum á fána Brasilíu standa orðin Ordem e Progresso, sem merkja „reglusemi og framför“?
- … að frumbyggjum Kanada fækkaði um 40 til 80% í kjölfar landnáms Evrópumanna?
- … að Michele Ballarin, eigandi WOW air, tók þátt í að breiða út samsæriskenningar um að fjarskiptabúnaður í bandaríska sendiráðinu í Róm hafi verið notaður til að svindla í bandarísku forsetakosningunum 2020?
- … að meginlandsréttur, réttarkerfi sem tíðkast víðast hvar á meginlandi Evrópu, er að grunni sóttur í lagabálk Býsansríkis, Corpus Iuris Civilis?
- … að skallaörninn og ljónið á skjaldarmerki Filippseyja merkja gömul yfirráð Bandaríkjanna og Spánar á eyjunum?
- … að sögurnar um Apaplánetuna (sjá mynd) hófust með skáldsögunni La Planète des singes eftir franska rithöfundinn Pierre Boulle frá 1963?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |