Leiðbeinandi taxtar SÍM
Dómnefndarstörf (þar með taldir undirbúningsfundir)
Dómnefndarstörf felast í mati og vali á verkum til sýninga eða verðlauna og krefjast því ábyrgðar og sérþekkingar.
Greiðsla: kr. 15.000 pr. fund
Hönnun og yfirstjórn sýninga:
Í hönnun flest ákvörðun um fyrirkomulag og útlit sýningar, söfnun mynda og gagna, svo og undirbúningur dagskrár sýningar og verkstjórn við frágang sýninga.
Greiðsla: kr. 7.500 pr. klukkustund *
Myndlistarmaður vinnur við uppsetningu á eigin sýningu,
Greiðsla kr. 7.500 pr. klukkustund *
Myndlistarmenntaðir tæknimenn við uppsetningu á sýningum, þar sem krafist er ábyrgðar og sérþekkingar
Greiðsla kr. 7.500 pr. klukkustund *
Viðgerð á eigin verkum : Lágmarksgreiðsla: kr. 35.000 *
Pöntuð leiðsögn myndlistarmanns um söfn eða sýningar, eigin eða annarra, einnig leiðsögn með erlenda eða innlenda gesti á vegum opinberra aðila.
Listamannaspjall myndlistarmanns um eigin sýningu.
Greiðsla: kr. 28.000,
30% álag ef leiðsögnin fer fram á erlendu tungumáli *
Kennsla
Stundakennsla, kr. 7.500 pr. kennslustund
Kynning í grunn- og framhaldskólum kr. 20.000
Kynning í skólum á háskólastigi kr. 25.000
30% álag ef kynningin er á erlendu tungumáli
Kynning í fyrirtækjum kr. 60.000
Þátttaka í pallborðsumræðum kr. 20.000
Stjórnun pallborðsumræðna kr. 35.000
Ráðstefnu-/fundarstjórn kr. 35.000
Stutt námskeið 60 mín. kr. 30.000
Lengri námskeið allt að 3 kennslustundir kr. 65.000
*Athugið að lágmarksútkall er 4 klukkustundir
Fari félagsmaður út fyrir sitt heimasvæði greiðist 25% álag
Þurfi félagsmaður að dveljast yfir nótt greiðist 50% álag
Greiðslurnar eru verktakagreiðslur.
Félagsmenn SÍM eru aðilar að BHM